Nýtt eldhús eftir máli
Þegar Daníel missir vinnuna fer athygli hans öll smám saman að beinast að eldhúsinnréttingunni. Og möguleikarnir á úrbótum eru svo margir og heillandi! En Daníel veitist erfitt að vekja ástríðu konu sinnar, Soffíu, gagnvart verkefninu. Hann gleymir sér löngum stundum yfir kynórum um starfsfólk innréttingabúða og ekki bætir úr skák þegar búsáhöldin lifna við og leggja orð í belg.
Fantasía og raunveruleiki renna saman á grátbroslegan hátt í þessu nýja leikriti eftir Friðgeir Einarsson. Í senn bráðfyndið og alvarlegt verk um tilbreytingarleysi hversdagsleikans, einmanaleikann og löngun eftir að mynda tengsl. Hvað er það í raun sem við viljum í lífinu? Þegar búið er að gera allt, ná öllum markmiðum, hvað þá?
Titill verksins felur í sér tilvísun í þekkta smásögu eftir Svövu Jakobsdóttur sem birtist fyrst á prenti árið 1966.
Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu haustið 2026.
Leikskáld
Friðgeir Einarsson
Leikstjórn
Björn Thors
Leikarar
Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Salka Gústafsdóttir og Ólafur Ásgeirsson.
Leikmynd og búningar
Elín Hansdóttir, Filippía I. Elísdóttir
Sviðshreyfingar
Margrét Bjarnadóttir
Lýsing
Jóhann Bjarni Pálmason
Tónskáld
Örvar Smárason
Hljóðhönnun
Þóroddur Ingvarsson
Starfsnemar
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Grímur Smári Hallgrímsson
Dramatúrgísk ráðgjöf
Melkorka Gunborg Briansdóttir, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson
//
A New Kitchen
When Daníel loses his job, his attention gradually turns entirely to the kitchen cabinets. The possibilities for improvement are so many and so alluring! However, Daníel finds it hard to spark his wife Soffía's enthusiasm for the project. He loses himself for long stretches in fantasies about kitchen-showroom staff, and things get even more confusing when the household appliances start to chime in.
Fantasy and reality merge in a new play by Friðgeir Einarsson. A work that is at once hilarious and serious, about the monotony of everyday life, loneliness, and the longing to form connections. What is it we actually want in life? When everything has been done, every goal reached, what then?
The title of the work carries a reference to a well-known short story by Svava Jakobsdóttir, first published in 1966.
Premiered at the National Theatre in autumn 2026.
Playwright
Friðgeir Einarsson
Director
Björn Thors
Cast
Hilmar Guðjónsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Salka Gústafsdóttir, and Ólafur Ásgeirsson.
Set and Costume Design
Elín Hansdóttir, Filippía I. Elísdóttir
Choreography
Margrét Bjarnadóttir
Lighting Design
Jóhann Bjarni Pálmason
Composer
Örvar Smárason
Sound Design
Þóroddur Ingvarsson
Interns
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, Grímur Smári Hallgrímsson
Dramaturgical Consultants
Melkorka Gunborg Briansdóttir, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Matthías Tryggvi Haraldsson